Spéspegill samfélags

Spéspegill samfélags

Fjöruborðið restaurant, Eyrarbraut 3a, 825 Stokkseyri Directions

Sat 05.09.2026 15:00

Grín, gamansemi, spaug, ádeila, revíur og myndasögur. Húmor er ómissandi og hefur sjaldan haft jafn mikilvægu hlutverki að gegna og á þessum tímum. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og Una Margrét Jónsdóttir lesa uppúr bókum sínum og spjalla við Hörpu Rún Kristjánsdóttur, rithöfund, ritstjóra og útgefanda og velta fyrir sér gildi þess að kátína og komedía fái að njóta sín í samtímanum.

Báðar hafa þær Lóa og Una fjallað um húmor í verkum sínum, hvor með sínum hætti. Una hefur ritað tvær bækur Silfuröld revíunnar og Gullöld revíunnar um sögu gamanleikja sem gera grín að samtíma sínum. Lóa hefur gefið út margar myndasögur þar sem hún gerir stólpagrín að sjálfri sér og samtíma sínum í Lóaboratoríum bókunum og Dæs og Fnæs.

Performers

  • Haustgildi
    Haustgildi

    Hausthátið sem er haldin árlega á Stokkseyri. Matarmarkaður, tónlist og myndlist.