Stjörnuleikar (All-Star game) HaukaSO  2026

Stjörnuleikar (All-Star game) HaukaSO 2026

Kuehne+Nagel höllin, Ásvellir 1, 221 Hafnarfjörður Directions

Sun Nov 29 2026 13:00

Í tilefni af körfuboltaviku Special Olympics í Evrópu ætlum við að endurtaka leikinn og halda aftur Stjörnuleika (All-star game) Hauka Special Olympics.

Spilaðir verða Unified-leikir milli Hauka SO og meistaraflokksleikmanna úr efstu deildum. Keppt verður í Ólafssal á stóra vellinum og verður umgjörðin sett upp eins og á meistaraflokksleikjum – með áhorfendastúku, dómurum og stigatöflu.

Fyrsti leikurinn hefst kl. 13:00. Nánara leikjaplan verður birt þegar nær dregur, en áætlað er að spila 3–4 leiki.

Þessi viðburður er stærsta fjáröflunin fyrir Hauka Special Olympics-liðið. Allur ágóði af miðasölu og sjoppunni rennur beint í ferðasjóð Hauka SO. Stefnt er að því að fara í keppnisferð til Svíþjóðar í apríl og taka þátt í Basketligen Special með þrjú keppnislið.