Stuðningshópur fyrir aðstandendur á Akureyri

Stuðningshópur fyrir aðstandendur á Akureyri

Víðilundur, 600 Akureyrarbær, Ísland, Víðilundur 17, 600 Akureyri Directions

Tue Dec 08 2026 17:00

Stuðningshópur fyrir aðstandendur fólks með heilabilun.

Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir, en eiga það sameiginlegt að eiga ástvin heima, í dagþjálfun eða á hjúkrunarheimili.

Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu.

HVAR: Salka félagsmiðstöð Víðilundi á Akureyri

Engin skráning og öll velkomin.