STYRKUR & RÓ Hatha jóga 4 skipti

STYRKUR & RÓ Hatha jóga 4 skipti

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Tue Nov 24 2026 19:45

STYRKUR & RÓ – Hatha Jóga 4 skipti

Hefst 24. nóvember 2026 kl. 19:45

Fjögur skipti til að byggja upp styrk og finna meiri ró.

Á þessu fjögurra skipta námskeiði kynnistu Hatha jóga, þar sem jógastöður, öndun og hugleiðsla fléttast saman. Við förum rólega í stöðurnar og gefum okkur tíma í þeim. Sumar reyna á styrk og jafnvægi á meðan aðrar gefa þér rými til að mýkjast og hvílast.

Öndunin er rauði þráðurinn í hverjum tíma. Við æfum okkur í að halda athyglinni við öndunina, líka þegar staðan reynir á. Þannig byggjum við upp styrk og stöðugleika í líkamanum um leið og við þjálfum einbeitingu og núvitund.

Komdu og gefðu þér stund til að hreyfa þig af athygli, anda og finna hvernig ró og kraftur geta farið saman.

Skráning

https://www.yogahusid.is/memberships?class=12