Sundlögin okkar

Sundlögin okkar

Skólatröð 5, 605 Akureyri, Iceland, Skólatröð 17, 605 Akureyri Directions

Thu 27.08.2026 20:00

Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00.

Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá "Sundlaugasumars 2026" en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum - á meðan "húsrúm leyfir," eða staðið á sundlaugarbakkanum.