Súrkál í öll mál! Hollusta, fróðleikur og fjör með Dagný Hermannsdóttur
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions
Thu Sep 24 2026 18:00
Súrkálsdrottningin Dagný Hermannsdóttir kemur og fræðir okkur um súrkál, býður upp á smakk af alls kyns tegundum af súrkáli og verður með sýnikennslu.
Í lokin verður svo happdrætti þar sem dregið verður um hver fer heim með súrkálið góða.
Dagný hefur skrifað bók sem heitir “Súrkál fyrir sælkera” og framleiðir ýmsar gerðir af súrkáli undir sama nafni sem fást í öllum helstu matvöruverslunum landsins.
Þessi viðburður er hluti af Löngum fimmtudögum og eins og ávallt er boðið uppá góðan félagsskap og heitt á könnunni.