Tendrun ljósa á Sorgartrénu á Akureyri

Tendrun ljósa á Sorgartrénu á Akureyri

Lystigarður, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Directions

Sun Nov 29 2026 17:00

Sorgartré Sorgarmiðstöðvar eru tvö, eitt staðsett í Lystigarðinum á Akureyri og hitt í Hellisgerði í Hafnarfirði. Viðburðurinn þann 29. nóvember hefst í Lystigarðinum á Akureyri kl. 17:00 þar sem Eydís Ösp Eyþórsdóttir fer með nokkur orð um jólin og sorgina. Síðan verður tendrað á ljósum á Sorgartrénu við fallega athöfn og sönghópurinn “Drottningarnar” taka nokkur lög❤️

Hugmyndin með Sorgartrénu er að öll þau sem hafa misst ástvin geti sest undir tréð og minnst þeirra sem fallin eru frá, á þessum ljúfsára tíma sem jólin eru fyrir syrgjendur. Sorgartrénu er einnig ætlað að vekja athygli á stöðu syrgjenda sem eiga um sárt að binda á þessum tíma árs. Öll eru því velkomin, hvort sem þau vilji sýna stuðning eða vilji minnast 💛