Þátttaka barna í íþróttastarfi
National Museum of Iceland, Suðurgata 41, 101 Reykjavík Directions
Fri Nov 20 2026 12:00
Þátttaka barna í íþróttastarfi
Umboðsmaður barna, í samvinnu við Hagstofuna, Ungmennafélag Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir fundi um þátttöku barna í íþróttastarfi.
Fundurinn verður haldinn á alþjóðlegum mannréttindadegi barna, 20. nóvember milli kl. 12 og 13:15.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands.
Á dagskrá fundarins verður meðal annars ávarp Ingu Sæland, mennta og barnamálaráðherra. Þá kynnir Anton Örn Karlsson, sérfræðingur hjá Hagstofunni niðurstöður verkefnisins, Þátttaka barna í íþróttastarfi.
Fundinum lýkur með pallborðsumræðum þar sem taka m.a. þátt Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Kolbeinn H. Stefánsson dósent við Háskóla Íslands og fleiri.