The Companion
Íþróttahúsið Austurbergi, Austurberg 3, 111 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 16:00
The Companion
„Róbótar finna ekki til, en við finnum til með þeim ...“
- Kate Darling, The New Breed
The Companion er persónulegt stefnumót áhorfanda og vélhundar. Í sýningunni lokkar vélhundurinn hinn mennska þátttakanda út í gagnkvæm samskipti og leik. Upplifunin virkjar okkar meðfæddu forvitni og samlíðan með öllum verum sem hreyfa sig. Hverjum erum við tilbúin að hlýða? Erum við tilbúin að treysta og gefa okkur á vald félaga sem ekki er mennskur?
WAUHAUS er þverfaglegur listhópur í Helsinki sem var stofnaður árið 2016. Verk hópsins má staðsetja milli ólíkra listgreina og hafa þau verið sýnd í ýmiss konar rýmum, svo sem söfnum, svörtum kössum, borgarlandslagi, á stórum leikvöngum og aðalsviðum stofnanaleikhúsa. WAUHAUS eru þekkt fyrir samsköpun og fagurfræði þar sem hið hljóð- og sjónræna fléttast saman. Meðlimir WAUHAUS eru sviðshönnuðurinn Laura Haapakangas, leikstjórinn Juni Klein, sviðshönnuðurinn Samuli Laine, hljóðhönnuðurinn Jussi Matikainen, danshöfundurinn Jarkko Partanen, hljóðhönnuðurinn Heidi Soidinsalo, framleiðandinn Minttu-Maria Jäävuori og framkvæmdastjórinn Julia Hovi. Hópurinn vinnur með öðru listafólki og menningarstofnunum bæði í Finnlandi og erlendis.
Sýningin er flutt fyrir einn gest í einu og tekur 20 mínútur í flutningi.
Aðgengi fyrir hjólastóla.
Börn á aldrinum 5-12 ára geta upplifað aðlagaða útgáfu af sýningunni í fylgd með fullorðnum aðila.
Listamenn: Jarkko Partanen, Jussi Matikainen, Laura Haapakangas from WAUHAUS
Útlit vélhunds: Kari Kankaanpää
Ljósahönnun: Mia Jalerva
Þróun hugbúnaðar: Aki Panuma (Probot)
Framleiðandi: Julia Hovi
Meðframleiðendur: WAUHAUS (Helsinki), Black Box teater (Oslo), Kiasma Theatre (Helsinki).
Í samstarfi við: Probot
Styrkt af: Nordic Culture Point, Jenny and Antti Wihuri Foundation, The Arts Promotion Centre Finland, City of Helsinki.
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/