Þegar skóladagurinn verður barátta

Þegar skóladagurinn verður barátta

Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Directions

Sat 26.09.2026 13:00

ISK 12500.00
Tickets / Registration
ISK 12500.00
Tickets / Registration

Á þessu málþingi beinist athyglin að börnum með taugaþroskafrávik — þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD — hóp sem talinn er vera 15-20% barna. Rannsóknir sýna að þessi börn eru í aukinni hættu á álagi og áföllum og þurfa öruggt og skilningsríkt umhverfi til að dafna.

Markmið málþingsins er að efla skilning og fara yfir hagnýtar leiðir sem styðja við þessi börn í því umhverfi sem þau lifa og hrærast mest í — á heimili sínu, í frístundastarfi - en síðast en ekki síst í grunn- og framhaldsskólum þar sem áreitin geta verið margvísleg.

Miða er hægt að kaupa á Tix - bæði í sæti og streymi.

Dagskrá:

Tilfinningavandi og taugakerfi barna með taugaþroskaraskanir

Guðrún Ólafsdóttir, sálfræðingur

Taugafjölbreytileiki, skólatengsl og tæknilausnir fyrir nám og starf

Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir - stofnandi Harts og aðgengissérfræðingur

Ósýnilega baráttan: Sértækir námserfiðleikar og málþroskaraskanir

Guðrún Carstensdóttir, sálfræðingur

Mikilvægi samkenndar fyrir börn/unglinga með taugaþroskaraskanir og foreldra þeirra

Bryndís Einarsdóttir – Mjöll Jónsdóttir, sálfræðingar

Að styðja í gegnum áskoranir – ACT fyrir börn, unglinga og foreldra

Rúnar Helgi Andrason, sálfræðingur

Fundarstjóri er Atli Már Steinarsson, fjölmiðlamaður.

Sterkari út í lífið er góðgerðarfélag sem rekið er af sálfræðingum í sjálfboðastarfi. Allur hagnaður rennur óskiptur til þess.