Tölum saman um líðan og tengsl – Barnaheill og Geðhjálp
Safnaðarheimilið á Reyðarfirði, , 730 Reyðarfjörður Directions
Tue Oct 06 2026 19:30
Barnaheill og Geðhjálp bjóða til opins samtals um líðan, samskipti og tengsl ungmenna. Dagskránni lýkur með örtónleikum Unnsteins Manuels. Fyrr um daginn vinna nemendur í 10. bekk frá Reyðarfirði, Neskaupstað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði saman í hópum og ræða líðan og veruleika ungmenna. Á kvöldfundinum kynna nemendur og/eða hópstjórar helstu niðurstöður. Í framhaldinu verður rætt um hvað hægt sé að gera til að styrkja líðan og tengsl í samfélaginu og á heimilum. Dagskrá 19:30 – Barnaheill og Geðhjálp opna fundinn og kynna dagskrána. 19:40 – Hópstjórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hópavinnunnar. 20:00 – Samtal um niðurstöður. 20:20 – Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er hægt að gera? 20:45 – Örtónleikar með Unnsteini Manuel. 21:00 – Fundi lýkur. Nemendur, foreldrar og forsjáraðilar eru hvött til að mæta, ásamt sveitarstjórnarfólki, starfsfólki félags- og velferðarmála, lögreglu og öðru áhugafólki. Öll eru velkomin, en dagskráin er ekki talin henta börnum yngri en 12 ára. Heimsóknin er skipulögð í samstarfi við grunnskólana í Fjarðabyggð og fjölskyldusvið.