Tríó Luna - Naut í tungli

Tríó Luna - Naut í tungli

Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions

Mon Oct 26 2026 18:00

Kynningar tónleikar Tríó Lunu.

Fyrstu tónleikar píanótríósins Tríó Luna.

Tríó Luna skipa þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir fiðluleikari, Jane Ade Sutarjo píanóleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari. Þær stofnuðu tríóið vorið 2026 með það að markmiði að flytja metnaðarfulla og kraftmikla tónlist fyrir fjölbreyttan hóp áheyrenda. Það er þó ekki einungis brennandi áhugi á kammermúsík sem sameinar meðlimi hópsins, heldur líka áhugi á stjörnuspeki, en þaðan dregur hópurinn nafnið sitt, Tríó Luna eða Tungltríó. Tónleikadaginn 26. október 2026, verður einmitt fullt tungl í nauti. Það sem einkennir nautið, samkvæmt stjörnuspekinni, er m.a. jarðtenging, þrautseigja og tryggð. Naut þykja afar staðföst, stundum svo staðföst að mætti frekar telja sem þrjósku. Þau eru nautnaseggir og eiga auðvelt með að réttlæta það að leyfa sér ýmsar lystisemdir. Efnisskrá kvöldsins endurspeglar þessa eiginleika nautsins að miklu leyti; tónmálið er þykkt og ríkulegt, staðfast og nokkuð alvarlegt.

Efnisskrá

Ludwig van Beethoven (1770-1827)

Sónata fyrir píanó í cís-moll, nr. 14 opus 27

Tunglskinssónatan

1. Adagio sostenuto

Edward Grieg (1843-1907)

Andante con moto, EG116

Felix Mendelssohn Bartholdy (1809-1847)

Píanótríó í d-moll, nr. 1, opus 49

1. Molto allegro agitato

2. Andante con moto tranquillo

3. Scherzo: leggiero e vivace

4. Finale: allegro assai apassionato

Aðgangur er ókeypis - Frjáls framlög velkomin

Performers