Tvöföld opnun: Dr. Gunni & Steinunn Eldflaug + S.H. Draumur spilar

Tvöföld opnun: Dr. Gunni & Steinunn Eldflaug + S.H. Draumur spilar

Faxafeni 12, 108 Reykjavík, Iceland, Faxafen 12, 108 Reykjavík Directions

Sat Oct 31 2026 14:00

Tvær myndlistarsýningar verða opnaðar í Havarí á Hrekkjavöku, 31. október. Dr. Gunni og Steinunn Eldflaug, opna hvor sína einkasýninguna:

DR. GUNNI – DRAUMUR Í LIT

Dr. Gunni sýnir 14 málverk sem byggja á textunum á plötunum Goð og Drap mann með skóflu með S.H. Draumi. Þetta er önnur einkasýning hans. Sú fyrri, Atvik, var haldin á Mokka kaffi árið 2016.

Af þessu tilefni kemur S.H. Draumur saman og spilar á opnuninni. Hljómsveitin starfaði á árunum 1982–1988, og þetta verður í fyrsta skipti síðan 2010 sem hún leikur opinberlega!

STEINUNN ELDFLAUG – TVÍVÍÐ TÓNLIST

Steinunn Eldflaug útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2011. Síðan þá hefur hún unnið jöfnum höndum að myndlist, forritun, gjörningum og tónlist undir listamannsnafninu dj. flugvél og geimskip. Í fyrra hélt hún einkasýningu í Smekkleysu þar sem hún sýndi vatnslitamyndir. Í Havarí gefur einnig að líta stærri akrílverk, innblásin af biblíusögum, tarotspilum og draumum.

Þetta er sölusýning sem stendur til 30. nóvember.

Öll hjartanlega velkomin!