Útgáfufögnuður, upplestur og tónleikar - Frelsisbjarmar

Útgáfufögnuður, upplestur og tónleikar - Frelsisbjarmar

Salka bókabúð, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Directions

Fri Oct 30 2026 17:00

Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu nýjustu bókar Vals Gunnarssonar, Frelsisbjarmar - Bandaríkin á öldinni okkar: Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis, í bókabúð Sölku föstudaginn 30. október.

Fögnuðurinn hefst með hefðbundnu útgáfuhófi og bókakynningu kl. 17 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.

Valur Gunnarsson fagnaði fimmtugsafmæli sínu á dögunum og af því tilefni stíga Valur og Regnúlpurnar á stokk kl. 18 og höfundur býður gestum að fagna með sér. Höfundur les kafla úr bókinni og hljómsveitin spilar lög. Blóm og kransar afþakkaðir en það má gjarnan kaupa bók. Klæðaburður almennt í amerískum anda. Við hlökkum til að sjá ykkur!

Um Frelsisbjarma:

Tvö hundruð og fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Bandaríkjanna og tuttugu og fimm ár frá þeim atburði sem mótað hefur nútímann svo mjög, árásirnar 11. september 2001. Valur Gunnarsson drekkti sér í amerískri dægurmenningu sem unglingur og sneri sér svo að sagnfræðinni. Hér fjallar hann um áhrif Bandaríkjanna, herstöðina á Íslandi, uppruna og afleiðingar 11. september, efnahagshrunið sem öllu breytti og sundrung þjóðarinnar. Bandaríkin voru á hátindi valda sinna í upphafi aldar en síðan þá hefur dregið úr mætti þeirra og heimsmyndin riðlast ört. Til að kanna hvernig við komumst hingað og hvað gerist næst þarf að skoða öldina okkar en jafnframt seilast aftur til upphafsins til að skilja þetta þjóðfélag sem framar öðrum var byggt á hugmyndum og draumum.

Að hætti hússins fléttar höfundur eigin ferðalög og persónulegar upplifanir inn í frásögnina. Æskuhetjan Bruce Springsteen kemur nokkuð við sögu sem og Leonard Cohen-hátíð í Minnesota, og jafnvel Rocky er sóttur heim í þessu landi sem ávallt virðist geyma bæði það besta og það versta.

Valur Gunnarsson lærði sagnfræði við Háskóla Íslands, Háskólann í Helsinki, Humboldt-háskóla í Berlín og Kúras-stofnunina í Kænugarði jafnt sem ritlist í Belfast og Norwich. Hann hefur sent frá sér fjölda bóka, þar á meðal Grænland og fólkið sem hvarf sem fjallar um ráðgátuna um norræna fólkið á Grænlandi, Berlínarbjarma þar sem hann kryfur sögu hinnar margslungnu borgar frá ýmsum hliðum og Bjarmalönd sem greinir frá arfleifð Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. Tvær bóka hans hafa komið út á ensku og ein er væntanleg á hindí. Þetta er ellefta bók hans.

Hljómsveitin Valur og Regnúlpurnar er þannig skipuð:

Valur Gunnarsson

Egill Viðarsson

Elvar Geir Sævarsson

Loftur Sigurður Loftsson

Sérstakur gestur:

Ísold Guðlaugsdóttir