Vatnaskógur að hausti 2026
Vatnaskógur, Vatnaskógarvegur, 301 Akranes Directions
Fri Oct 23 2026 15:00
Við endurtökum leikinn - fósturfjölskylduhelgi í Vatnaskóg verður haldin að hausti 2026, helgina 23-25. október.
Skráning er opin og fer fram hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSc-admWsHBdWwqT1HJv4s9zCc-RMMpsVHoovJFrLBBnlUVURg/viewform?usp=dialog
Frábær helgi í fallegu umhverfi. Stútfull dagskrá af gleði og glaum fyrir þau yngri og fræðslu og félagsskap fyrir þau eldri. Við birtum nánari dagskrá þegar nær dregur en ýmislegt ber á góma í Vatnaskógi og í fortíðinni höfum við fengið leikhóp til okkar, blaðrarann, spilavini og fræðslu fyrir fullorðna fólkið ásamt allri hinni hefðbundnu dagskrá sem Vatnaskógur hefur upp á að bjóða.
Á staðnum er frábær gistiaðstaða. Hver fjölskylda fær sitt eigið herbergi en þarf að taka með sér lök, sængur/svefnpoka og kodda, góð útiföt fyrir öll veður og góða skapið. Annað er á staðnum.
Starfsfólk Vatnaskógs sér um að útbúa ljúffengan mat í öll mál en 5 máltíðar eru framreiddar á laugardegi. Mikilvægt er að láta vita ef einhver fæðuóþol/ofnæmi eru til staðar.
Verð:
Helgin kostar 17.800 á mann (frítt fyrir 6 ára og yngri)
Það er þó 60.000 króna greiðsluþak á helginni, óháð fjölda barna í fjölskyldu.
Innifalið er gistiaðstaða, fullt fæði allan tímann og skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna.
(Athugið, greiðsluþakið nær yfir 2 fullorðna, skráða félagsmenn í Félagi fósturforeldra og börn óháð fjölda. Ef teknir eru með fleiri fullorðnir einstaklingar yfir 20 ára aldri, t.d. ömmur og afar greiða þau fullt gjald).