Velferðar- og viðverustjórnun: Hagnýt verkfæri

Velferðar- og viðverustjórnun: Hagnýt verkfæri

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Feb 10 2027 09:00

Hámarkaðu vellíðan og velgengni á þínum vinnustað með heildstæðri viðverustjórnun.

Á þessu námskeiði færðu hagnýt verkfæri og innsýn í reynslusögur sem styrkja getu þína til að halda í mannauðinn og efla vinnustaðinn til muna.

Velferðar- og viðverustjórnun er lykilþáttur í mannauðsstjórnun og snýst um mun meira en eftirlit og talningu veikindadaga. Námskeiðið byggir á heildstæðri nálgun sem spannar forvarnir, markviss viðbrögð og farsæla endurkomu starfsfólks til vinnu. Lögð er áhersla á forvarnamiðaða nálgun þar sem hún hámarkar árangur, dregur úr kostnaði og sparar tíma.

Gestur úr atvinnulífinu kemur í heimsókn og deilir með þátttakendum vegferð sinni við innleiðingu heildstæðrar viðverustjórnunar.

Námskeiðið er ætlað mannauðsfólki og stjórnendum á öllum stigum sem vilja efla velferð á sínum vinnustað, beita forvörnum í stað viðbragða, draga úr fjarveru og styðja við vellíðan starfsfólks á markvissan hátt.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Uppbyggingu markvissra forvarna.
  • Framkvæmd samtala sem hluta af forvörnum.
  • Viðbrögð við skammtíma- og langtímafjarveru.
  • Samtalstækni í krefjandi samtölum um líðan og viðveru.
  • Stuðning við árangursríka endurkomu til vinnu.
  • Hlutverk stjórnenda við stjórnun viðveru og velferðar.

Ávinningur þinn:

  • Skýrari sýn á orsakir dvínandi vellíðanar og aukinnar fjarveru.
  • Hæfni til að beita markvissum forvörnum og grípa fyrr inn.
  • Aukin færni í samtölum um viðkvæm málefni.
  • Geta til að byggja upp markvissari og mannlegri velferðar- og viðverustjórnun.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér dæmi úr eigin vinnuumhverfi til að vinna með á námskeiðinu. Þátttakendur fá öll stuðningsgögn frá kennara og ekki er þörf á sérstökum undirbúningi.