Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Wed Mar 17 2027 12:30

Á námskeiðinu er farið í eðli verkefnastjórnunar, tilgang hennar og nýtingu á hagnýtan og skemmtilegan hátt.

Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.

Námskeiðið er fyrir öll þau sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnastjórnun og hvaða árangri er hægt að ná.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
  • Undirbúning verkefna og ræs.
  • Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
  • Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
  • Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
  • Skil og lúkning verkefna.

Ávinningur þinn:

  • Að auka skilning á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.
  • Að þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.

Aðrar upplýsingar

Athugið - ef þátttakandi sækir bæði Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin og Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun á tveimur samliggjandi misserum er veittur 20% afsláttur af seinna námskeiðinu.