Vetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna
Kynnisferðir, Klettagarðar 12, 104 Reykjavík Directions
Mon Dec 21 2026 19:00
Vetrarsólstöðuganga Píeta samtakanna 21. desember 2026
Vetrarsólstöðugangan er innihaldsrík samverustund á dimmasta kvöldi ársins haldin í minningu þeirra sem látist hafa í sjálfsvígi og hvatning til þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir um að gefast ekki upp heldur þiggja hjálp og velja lífið.
Hist er í húsnæði Kynnisferða við Klettagarða 12. sunnudaginn 21. desember. Húsið opnar kl. 19:00 og dagskrá hefst 19:30. Boðið er upp á tónlistaratriði og flutt verða stutt ávörp. Genginn er svo stuttur spölur að vitanum við Skarfaklett þar sem minningarstund verður haldin. Hægt verður að kaupa kerti til styrktar Píeta samtökunum og kveikja á þeim við vitann. Einnig skrifum við skilaboð um söknuð og ást á gula vegginn á vitanum. Yfir jól og áramót munu kveðjurnar standa á veggnum undir blikkandi ljósi og minna hvern sem kemur á að ástin er eilíf.
Öll eru velkomin.
Ókeypis aðgangur.
- Vöffluvagninn verður á staðnum með funheitt kaffi, kakó og vöfflur til styrktar Píeta.
- Kerti og varningur til sölu til styrktar Píeta.
- Pennar til að skrifa minningarorð á vitann verða á staðnum.
Dagskrá:
19:00 Hús opnar og Vöffluvagninn mætir
19:30 Stutt ávörp, Edda Björgvins og Anna Margrét Bjarnadóttir
19:40 Ungu listamennirnir KASI & ISAK taka lagið Tilfinningar gleymast
19:45 Söngsveitin Fílharmónía syngur nokkur lög
20:00 Gengið út að vita, kveikt á kertum og minningarorð rituð á vitann.