Viðskiptaspjall við Magnús Sverri Þorsteinsson
Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavík Directions
Tue Oct 06 2026 17:00
Fyrsti gesturinn í Viðskiptaspjalli Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs þennan veturinn er Magnús Sverrir Þorsteinsson forstjóri og einn eiganda Blue Car Rental.
Magnús (Maggi í Blue) byrjaði ungur með aðeins fimm bíla og stýrir nú einni stærstu bílaleigu landsins. Hann hefur lýst sjálfum sér sem fínum í mörgu en ekki frábærum í neinu, svona eins og núverandi Liverpool-liðið sem hann elskar. Árið 2010 byrjaði hann með aðeins fimm bíla en í dag eru þeir komnir yfir fjögur þúsund. Hann er stoltur af því að hafa borgað mikinn skatt í gegnum tíðina og hefur vakið þjóðarathygli sem einn af forsvarsmönnum Góðgerðafestar Blue Car Rental sem undanfarin fimm ár hafa nú safnað yfir 100 milljónum króna til styrktar góðgerðarmálum.
Við ræðum um ferilinn hans, skjótan vöxt, áskoranir í ferðaþjónustu, fótbolta, Góðgerðafest og margt fleira. Léttar veitingar í boði og skemmtileg stemning.
Ekki missa af kraftmiklu spjalli við Magga í Blue. Frítt inn fyrir meðlimi FVH, Viðskiptaráðs eða Vinnustofu Kjarvals 🤝