Víknaslóðir og Stórurð 2027

Víknaslóðir og Stórurð 2027

Reykjavik, , Reykjavik Directions

Thu Jul 29 2027 18:00

Frábær fimm daga lúxus gönguferð um einstaka náttútufegurð Austfjarða, um Víknaslóðir og Stórurð, með Gönguferðum Grétu í samstarfi við Bookolis.

Boðið er upp á gistingu á Kirkjumiðstöðinni, sem er stutt frá Egilstöðum, kvöldið áður en ferð hefst og er sú gisting innifalin í verði. Gist er í skálum Ferðafélags Fljótdalshéraðs.

-29 júlí. Hittumst um kvöldið á Eiðum þar sem við gistum fyrstu nóttina.

-30 júlí Bakkagerði-Breiðuvík.

Við hittumst kl. 10:00 á Borgarfirði eystri og hefjum göngu, þeas þeir sem ekki hittust kvöldið áður.

Göngum yfir í Brúnavík og þaðan í Breiðuvík þar sem við gistum fyrstu nóttina. Þetta eru um 15km dagur og hækkun um 830m.

-31 ágúst. Breiðuvík-Húsavík. Dagur tvö er 14km og hækkun um 580m.

-1 ágúst. Húsavík- Loðmundafjörður. Dagur þrjú er 13km, hækkun um 510m.

-2 ágúst. Loðmundafjörður-Bakkagerði. Fjórða daginn göngum við til baka Kækjuskörðin í Borgafjörð eystri og fáum fiskisúpu hjá Kalla á Álfaborg áður en við keyrum tilbaka á Kirkjumiðstöðina á Eiðum, þar sem er gist. Þetta er það 15 km dagur og hækkun um 920m.

-3 ágúst. Dag fimm er gengið í Stórurð sem er um 16 km.

Gistum aftur á Eiðum og gerum vel við okkur síðasta kvöldið. Förum til Egilstaða í Vök og borðum svo saman á Aski.

Þetta er ganga sem allir í ágætu gönguformi ættu að ráða við, fínt undirlag og engin á að vaða nema fyrsta daginn og er hún mjög vatnslítil. Og enn er nægur tími til að byrja að æfa sig. Gott að hafa svona göngu sem gulrót.

Ferðin kostar 156.000kr og innifalið í verði er:

-Gisting í sex nætur

- Fimm göngudagar.

-Trúss alla daga

-Morgunmatur alla daga sem samanstendur af hafragraut með ýmsu góðgæti.

-Kvöldmatur öll kvöld nema síðasta kvöldið (og kvöldið sem þið eruð að koma ykkur á staðinn)

- Vök bað

-Leiðsögumaður

-Aðstoð við undirbúning

-Einnig leiðsögn og kennsla fyrir þá sem vilja á myndavélar og að taka betri myndir

Takmörkuð pláss í boði þar sem hópastærð er í kringum 16-19 manns. Allar nánari upplýsingar hér í skilaboðum, í síma 8995796 eða á greta@greta.is

Staðfestingargjald er 40.000kr og er ekki endurgreitt nema ferð falli niður. Hægt er að áframselja sætið sitt.

Ferðina þarf að greiða að fullu 6 vikum áður en hún hefst.