Vinnustofa á Eskifirði
Tónlistarmiðstöð Austurlands, Dalbraut 2, 735 Eskifjörður Directions
Mon Oct 12 2026 16:30
Ertu með hugmynd? Við hjálpum þér að koma henni í framkvæmd!
📍 Tónlistarmiðstöð Austurlands
📝 Skráning er nauðsynleg. Vinnustofur falla niður ef engin skráning berst.
🔗 Nánari upplýsingar og skráning:
https://austurbru.is/throun/uppbyggingarsjodur-austurlands/
📩 Fyrirspurnir: uppbyggingarsjodur@austurbru.is
Austurbrú stendur fyrir vinnustofum um Uppbyggingarsjóð Austurlands víðs vegar um landshlutann þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að kynna sér sjóðinn og fá aðstoð við að vinna að styrkumsóknum.
Uppbyggingarsjóður Austurlands styður við verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningar sem stuðla að uppbyggingu og eflingu Austurlands.
Á vinnustofunum förum við meðal annars yfir:
✅ Hlutverk sjóðsins og hvaða verkefni geta fengið styrk.
✅ Hvernig umsóknarferlið virkar.
✅ Hvað einkennir góða styrkumsókn.
✅ Algeng atriði sem gott er að hafa í huga við umsóknarskrif.
Þátttakendum gefst einnig tækifæri til að ræða eigin hugmyndir, spyrja spurninga og fá leiðsögn við gerð umsókna.
Þú þarft ekki að vera komin/n með fullmótaða hugmynd til að mæta! Vinnustofurnar eru ætlaðar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem eru þegar farin að vinna að umsókn.