WR Suðurlandsmót og Skeiðleikar Geysis 2026

WR Suðurlandsmót og Skeiðleikar Geysis 2026

Rangárvallasýsla,

Fri 28.08.2026 14:00

WR Suðurlandsmót fer fram 27.-30. ágúst 2026 á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir síðasta móti ársins á Rangárbökkum!

Mótið er ætlað fullorðins flokkum og er opið.

Komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka gætu þeir verið felldir niður eða einungis riðin forkeppni.

Ungmenni mega skrá í T1, T2, F1 og V1 þar sem ekki var boðið upp á þessa flokka á Suðurlandsmóti yngri flokka. Aðrir flokkar eru ekki opnir ungmennum.

Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á skraninggeysir@gmail.com

Mótstjóri:

Opið verður fyrir skráningar til sunnudagsins 23. ágúst kl. 23:59.

Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:

- Nái skráning ekki fjölda til úrslita getur flokkurinn fallið niður eða eingöngu riðin forkeppni.

- Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.

- Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Meistaraflokkur

T1, T2, T3, T4, V1, V2, F1, F2, PP1

1.flokkur

T3, V2, F2, T4, PP1

2.flokkur

T3, T7, V2, F2, T4, PP1

Opinn flokkur í skeiði: P1, P2, P3

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

10.000kr – Fullorðinsflokkar

Verð í skeiðgreinar 150m, 250m og 100m flugskeið er: 5.000kr

Sjáumst á Rangárbökkum!

Performers

  • Hestamannafélagið Geysir
    Hestamannafélagið Geysir

    Hestamannafélagið Geysir var stofnað 27. nóvember 1949 í Hellubíói á Hellu. Félagssvæðið nær frá Þjórsá að Markarfljóti og eru félagsmenn um 900 talsins. Félagssvæði félagsins er á Rangárbökkum við Hellu.