Yoga Flæði með Katrínu - námskeið fyrir byrjendur og þá sem vilja betri grunn í yoga

Yoga Flæði með Katrínu - námskeið fyrir byrjendur og þá sem vilja betri grunn í yoga

Yoga Shala, Skeifan 7, 108 Reykjavík Directions

Mon 07.09.2026 18:30

Byrjaðu haustið vel og skráðu þig á þriggja vikna yoga námskeið þar sem þú styrkist, liðkast og finnur þinn innri kraft.

Námskeiðið miðar að því að tengja þig betur við þinn líkama á sama tíma og þú kynnist jóga. Þú lærir hvernig má aðlaga hverja æfingu að þér til að þú fáir sem mest út úr iðkuninni.

Þú kynnist ýmsum hugtökum sem eru notuð við jógaiðkun, tengist betur líkamanum, eykur styrk og sveigjanleika, æfir þig í núvitund og kynnist þeirri kyrrð og ró sem jógaiðkun getur fært þér.

Í Yoga Flæði með Katrínu verður kennt á mánudögum og fimmtudögum kl 18:30-20:00 (90 min) í Yoga Shala Reykjavík frá 7. september - 24. september og kostar 26.900 kr. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga á jógadýnuna í fyrsta skipti og þeim hafa áður stundað yoga og vilja rifja upp æfingarnar og fara betur yfir grunninn.

Nánar: yogashala.is/yogaflaedi