Bjarnaneskirkja

Bjarnaneskirkja

Bjarnaneskirkjuvegur, Bjarnanes, 781 Höfn í Hornafirði

About


Bjarnaneskirkja var vígð 4. júlí árið 1976, en þá voru liðin 19 ár frá því að fyrsta skóflustungan var tekin. Kirkjan er teiknuð af Hannesi Davíðssyni arkitekt og byggingarmeistari var Guðmundur Jónsson. Hún er óeinangruð steinkirkja, hvítmáluð að utan og innan. Kirkjuskipið er með hvolfþaki og víkkar í átt að útidyrum. Engir gluggar eru á kirkjuskipinu, en stór bogalagaður gluggi yfir útidyrum og birta kemur gegnum hann inn í kirkjuna. Upp í kórinn eru tvær tröppur, hann er þríhyrningslaga og neðri hluti hans er mun breiðari en kirkjuskipið, hann verður svo að þríhyrningslaga turni. Á honum er stór gluggi og mjóir gluggar til hliðar. Birtan í kirkjunni er mjög sérstök og getur verið einstaklega falleg, einkum síðla dags.

Trékross er yfir miðju altari, hannaður af Hreini Eiríkssyni. Altaristafla úr kirkjunni við Laxá er á eina slétta veggnum í kirkjunni, við útgöngudyrnar. Er hún máluð af Jóni Þorleifssyni listmálara árið 1924. Þetta merka og fagra listaverk var kirkjunni gefið af sveitungum. Myndin samanstendur af fjórum aðskildum myndum, einni þríhyrningslaga sem sýnir boðun Maríu, einni stórri í miðið, sem sýnir fæðingu frelsarans og tveimur til beggja hliða. Vinstra megin er skírn Jesú í ánni Jórdan, hægra megin er krossburður Krists til krossins. Kirkjan á kaleik og patinu úr silfri, sem eru gamlir gripir og virðast íslenskir. Auk þess á kirkjan þjónustukaleik og patinu úr silfri Oblátuöskjur eru úr postulíni og vínkanna í sama stíl.

Í kirkjunni er harmoníumorgel, átta radda, sem Kvenfélagið Vaka gaf við vígslu kirkjunnar og sr. Gylfi Jónsson sá um að velja. Prédikunarstóllinn er úr oregonpine, gegnheill og látlaus, hannaður af Hannesi Davíðssyni arkitekt. Skírnarfonturinn er úr útskorinn úr viði. Á hann er letrað: Leyfið börnunum að koma til mín.

Upcoming events

  • Vígsluafmælismessa – Bjarnaneskirkja 50 ára
    Vígsluafmælismessa – Bjarnaneskirkja 50 ára
    Sun Nov 22 2026 14:00
    View event