Hvalfjarðareyri
, 276 Mosfellsbær
About
„Á sunnanverðri Hvalfjarðarströnd norðan við Eyrarfjall er Hvalfjarðareyri. Meðfram ströndinni er að finna mikinn fjölda síðsteinda (seólíta). Síðsteindir myndast við ummyndun bergsins þegar heitt vatn leikur um það. Á Hvalfjarðareyrinni er einnig einn aðalfundarstaður baggalúta á suðvestur horni landsins. Baggalútar eða kýlingar nefnast smákúlur sem myndast þar sem gas hefur orðið innlyksa í líparíthraunum eða flikrubergi. Þeir eru ýmist stakir eða samvaxnir tveir eða þrír hér og þar í kvikunni. Baggalútar eru yfirleitt frá 0,5-3 cm í þvermál en geta þó orðið enn stærri“. Eyrin er frábær staður til útivistar og fyrir þá sem hafa áhuga á fuglum og fjörulífi.