Námskeið fyrir organista og kórstjóra

Námskeið fyrir organista og kórstjóra

Háteigskirkja, Háteigsvegur 27-29, 105 Reykjavík Directions

Sun 23.08.2026 17:00

Sunnudagur 23. ágúst

Kl. 17 Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju með Christian Barthen

Við hvetjum fólk eindregið til að hefja þessa námskeiðisdaga á því að mæta á tónleika Christian Barthen. Aðgangur er ókeypis fyrir félagsfólk í FÍO

Kl. 20-22 Raddþjálfun kóra I (nánari lýsing er hér fyrir neðan).

Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir. Háteigskirkja.

Mánudagur 24. ágúst

Kl. 9-13 Masterclass með Christian Barthen í Hallgrímskirkju https://www.christianbarthen.com/ Hámarksfjöldi virkra þátttakenda er 8 og þarf að láta vita um efnisval í síðasta lagi 12. ágúst.

Kl. 16-18.30 Raddþjálfun kóra II. Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir, Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.

Þriðjudagur 25. ágúst

Kl. 9-11.30 - Raddþjálfun kóra III. Umsjón Laufey Helga Geirsdóttir, Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.

Kl. 11.30 - Hádegishlé

Kl. 12.30-13.30 - Kynning á nýju efni fyrir kóra: “Jólalög - nýtt efni ásamt útsetningum á eldra efni”. Umsjón Magnús Ragnarsson og Arngerður María. Háteigskirkja.

Boðið verður upp á 3 samsetningar:

PAKKI I - ORGEL MASTERCLASS

Almennt verð kr. 20.000,-

Félagsmenn FÍO kr. 10.000,-

Nemendur Tónskólans kr. 0

PAKKI II - RADDÞJÁLFUN KÓRA I, II og III

Kr. 12.000,-

Ath. þeir nemendur Tónskólans sem taka námskeiðið sem hluta af náminu greiða ekki

PAKKI III - MASTERCLASS OG RADDÞJÁLFUN KÓRA

Almennt verð kr. 30.000,-

Félagsmenn FÍO kr. 20.000,-

Síðasti dagskrárliður; Kynning á nýju efni fyrir kóra, verður opinn öllum.

Skráningar fara fram með því að senda póst á [email protected] fyrir 1. ágúst næstkomandi.

Þar skal koma fram:

Nafn - kennitala - Pakki I, II eða III - hvort viðkomandi er nemandi skólans, eða í FÍO

Síðast en ekki síst þurfa þeir sem hafa hug á að vera virkir þátttakendur, þeas að spila, á masterclass að taka það fram. Hámarkið er 8 spilarar og hér gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.

RADDÞJÁLFUN KÓRA - námskeiðslýsing

Fyrsti hlutinn verður í formi fyrirlestrar þar sem leitast verður við að svara spurningum varðandi samhljóm, legato-söng, tengsl textameðferðar, framburðar og kórhljóms. Spennu, spennulosun og líkamsstöðu t.d. varðandi bak og kjálka/höku. Fjallað um hugsanlegar ástæður þess að fólk syngur undir tóni eða raddir sem skera sig úr (e.t.v. sjálfskipaðar „leiðandi raddir“) og hvernig hægt sé að bregðast við því og í tengslum við það: muninn á hlustun annars vegar og heyrn hins vegar. Auk þess fjallað um hið sívinsæla fyrirbrigði „öndun“.

Í öðrum hluta verður komið að þessum sömu hlutum í „praxís“, hvaða æfingar eru hentugar og þær æfðar/sungnar og rætt um hver sé tilgangur (upphitunar-) æfinga. Fjallað verður um hugmyndir og æfingar varðandi athygli kórfólks á æfingu og hvernig við fáum fólk til að „vera á staðnum“ á meðan æfingu stendur og góðar leiðir fyrir kórstjóra að halda athygli á æfingum. Hvenær er þörf á uppbroti á kóræfingu, t.d. með öðruvísi stöðu kórsins, líkamsæfingum og þá hvaða? Jafnvel létta leiki til að hrista upp í fólki? Í lok dags fáum við kór í heimsókn til að vinna með í tengslum við áðurnefnd atriði.

Þriðji og síðasti hluti: samantekt, spurningar, vangaveltur ofl.

Performers

  • Tónskóli þjóðkirkjunnar
    Tónskóli þjóðkirkjunnar

    Tónskóli þjóðkirkjunnar hefur starfað allt frá stofnun embættis söngmálastjóra þjóðkirkjunnar árið 1941 en hét þá Söngskóli þjóðkirkjunnar og starfaði í formi námskeiða. Síðar var nafni skólans breytt og er hann rekinn sem níu mánaða tónlistarskóli. Í skólanum er kenndur orgelleikur á grunn-, mið- og framhaldsstigi en einnig er boðið upp á nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist. Nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist hentar vel þeim sem vilja undirbúa sig fyrir frekara nám í kirkjutónlist og kórstjórn. Einnig nýtist það tónlistarmönnum sem vilja bæta við sig fagþekkingu á sviði kirkjutónlistar. Starf organista er fjölbreytt og gefandi við margvíslegar aðstæður og miðar námið við Tónskólann að því að veita nemendum þann víðtæka og fjölbreytta grunn sem starf organista krefst.

    Í skólanum er einnig hægt að sækja endurmenntun í orgelleik, söng og ryþmískum hljómborðsleik auk annarra námskeiða.

  • Magnús Ragnarsson
    Magnús Ragnarsson

    Conductor of the choirs.