Tónskóli þjóðkirkjunnar
About
Tónskóli þjóðkirkjunnar hefur starfað allt frá stofnun embættis söngmálastjóra þjóðkirkjunnar árið 1941 en hét þá Söngskóli þjóðkirkjunnar og starfaði í formi námskeiða. Síðar var nafni skólans breytt og er hann rekinn sem níu mánaða tónlistarskóli. Í skólanum er kenndur orgelleikur á grunn-, mið- og framhaldsstigi en einnig er boðið upp á nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist. Nám við framhaldsdeild í kirkjutónlist hentar vel þeim sem vilja undirbúa sig fyrir frekara nám í kirkjutónlist og kórstjórn. Einnig nýtist það tónlistarmönnum sem vilja bæta við sig fagþekkingu á sviði kirkjutónlistar. Starf organista er fjölbreytt og gefandi við margvíslegar aðstæður og miðar námið við Tónskólann að því að veita nemendum þann víðtæka og fjölbreytta grunn sem starf organista krefst.
Í skólanum er einnig hægt að sækja endurmenntun í orgelleik, söng og ryþmískum hljómborðsleik auk annarra námskeiða.