Jónsgarður
, 400 Ísafjörður
About
„Jónsgarður er elsti skrúðgarðurinn á Ísafirði, opnaður árið 1922. Margir lögðu vinnu í garðinn og voru dagsverk þeirra skrifuð niður í bók. Jón Klæðskeri Jónsson og Karlinna Jóhannsdóttir eiginkona hans voru helstu hvatamenn að gerð garðsins og unnu þau við báða garðana fyrstu árin.“ Eftir 1970 fóru garðarnir í órækt, en um 1978 var þáverandi garðyrkjustjóra falið að koma þeim í betra horf. Árið 1991 samþykkti bæjarstjórn að gefa garðinum nafnið Jónsgarður og sumarið eftir var vígður minnisvarði um þau hjónin í garðinum, unninn af Jóni Sigurpálssyni myndlistarmanni. Jónsgarður hefur ekki síst aðdráttarafl vegna hvalbeina sem þar standa.